Thursday, April 06, 2006

Aftan Festival

...þá er aftan festival byrjað í Sandgerði... Halli var búinn að gera mig svo heita fyrir að mæta en svo mundi ég eftir því að auðvitað þurfti ég að vera að vinna í kvöld :-( ef ég verð rosa fljót þá næ ég samt kannski að fá mér einn öl með þeim á Mamma Mía. Mig langar ekkert smá að sjá hann og Guggu taka lagið :-) Morgundagurinn verður ljúfur. Fer með bekknum að horfa á Grease, sem unglingastigið er búið að setja upp í skólanum, er búin að heyra að þetta sé alveg geggjað hjá þeim, hlakka mikið til. Síðan verður það páskaföndrið, maður verður náttlega að leyfa þessum greyjum að föndra eitthvað, smá tilbreyting :-) Er búin að útbúa voða flott handa þeim til að dunda við, páskaunga í körfu, voða dúlló... Úllinn minn er að fara að fermast í sunnudaginn, ég trúi þessu varla, litli sæti brói orðinn svona stór... en jú maður eldist víst líka, maður er alveg farinn að sjá ummerki ellinnar hér og þar :-) (eða svona)... og svo... eru aðeins 58 dagar til Boston, ekkert smá stutt þangað til... ég og Thelma ætlum sko heldur betur að meika það...

kv. Mulla

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hvaða?
oj hvað þú ert klikkuð, mig grunaði þetta samt síðast þegar þú komst og keypti mér nýjan salernisbursta...

10:36 AM  
Blogger Gullanna Parker said...

hehe :-) ættir að sjá mig þegar ég er að vinna í techno ;-) fullt af burstum þar...

2:16 PM  

Post a Comment

<< Home