Monday, December 11, 2006

...

fokk bloggspot

123.is/gullanna

Thursday, December 07, 2006

Stein(aldar)maðurinn

Árni Johnsen fór í steininn fyrir að stela stein. Hann bjó til myndir úr stein meðan hann sat inni í steininum. Hvað næst? Ætlar hann að byggja jarðgöng til Vestmannaeyja úr (múr)steinum :-) Árni er eins og lítill strákur með fulla vasa af grjóti og nöglum sem kann ekki að skammast sín.

Monday, November 27, 2006

jólabóla

Eru þið farin að hlakka til jólanna? Það er ekki sutt síðan ég fór að hugsa til jólanna og hlakka til þess tíma þegar ég fer að heyra jólatónlist óma í útvarpinu, geti sest niður í rólegheitunum og föndrað jólakortin og baka smákökur. En hvað??? Núna þegar tíminn er alveg að skella á þá er eiginlega ekki til vottur af tilhllökkun. Frekar hryllir mig við hugsuninni að það séu að koma jól. Ég nenni ekki að fara að standa í þessu. Ég hef alltaf verið mikið jólabarn svo þetta er mjög skrýtið. Ég veit um allavega þrjár manneskjur sem eru búnar baka fyrir jólin og eina sem kláraði að skrifa jólakortin um miðjan september. Í fyrra stalst ég í jólaplöturnar langt fram í tímann en núna hef ég ekki einu sinni hugsað um að gera það. Jólin eiga að vera hátíð fjölskyldu og friðar en eru bara hátíð greiðslukortafyrirtækja og verslana. Eða allavega tíminn fyrir jól. Hvað þarf maður að kaupa/gera fyrir jólin?

Jólainnkaupalisti:
jólagjafir
jólamatur
jólapappír
jólakort
jólageisladiskar
jólaskraut
jólatré
jólaföt
jólakerti
jólakrans
jólastjarna
jólakonfekt
jólamandarínur
jólamöndlugrautarverðlaun


Jólatossalisti:
gera jólahreingerningu
jólaverslunarferð, margar
skrifa jólakortin
fara með jólakortin í póst
pakka inn jólagjöfunum
fara jólagjafarúnt
hvað á að vera í jólamatinn?
hvað á að drekka á jólunum?
vera í jólaskapi
þrífa bílinn
skipta á rúmunum á aðfangadag
strauja jólafötin
horfa á Christmas Vacation og The Grinch
búa til jólaglögg
skreyta húsið innan sem utan
segja þúsund sinnum gleðileg jól eða gleðilega hátíð
setja negul í appelsínu og hengja í eldhúsgluggann


Og þetta er bara brot af því (v)besta. En svo koma jólin. Maður vaknar snemma á aðfangadag og fær sér jólakaffi og smákökur við kertaljós. Búin að öllu. Nei gleymdi einu, á eftir að setja jólarúmfötin á. Steikin í ofninn snemma og ilmurinn yfirtekur húsið. Nú er maður víst orðin mamman sem er í eldhúsinu. Nema hvað að það eru náttúrulega engin börn á mínum bæ, nema jú Tóti. Allir fara í jólabað og ný nærföt. Maturinn alveg að verða tilbúinn. Búið að leggja á borðið. Jólaölið komið í könnuna og allt meðlætið í fínar skálar. Búið að kveikja á kertunum. Messa byrjar og mamman segir gjörið svo vel.

Nú er ég farin að hlakka til jólanna. Ég þurfti bara smá upprifjun. Jólin eru eins og þegar fyrsti snjórinn fellur, alltaf jafn gaman en farið jafnfljótt aftur. Það er eitt sem ég hlakka til allt árið að komi. Þorláksmessa. Ég hlakka svo til að fá mér vel kæsta skötu með miklum hamsa, hákarl og íslenskst brennivín. UMMMM. Ég læt mig sko ekki vanta í hina árlegu skötuveislu tengdó.

Friday, August 18, 2006

...

alltaf jafn dugleg að blogga... nú er bara skólinn að byrja, hætt í sumarvinnunni... er nákvæmlega ekki búin að gera neitt í sumar... ekki eitt ferðalag... smá kojudjamm (nákvæmlega tvö skipti) hérna heima THAT'S IT... nú er kominn tími fyrir að klæða sig betur og fara í sokka... skóli byrjar á þriðjudaginn... það verður gaman að fá að sjá ný andlit af litlum krílum sem ég fæ að ráðskast með í vetur :) ég hef nákvæmlega ekkert að segja... bara samt láta vita að ég er á lífi

ta ta

Sunday, July 16, 2006

já góðan daginn... þá ætla ég að reyna að blogga eitthvað, var reyndar búin að skrifa heilan helling um Búlgaríu og fullt af öðru góðu stöffi, sem síðan ég bara engan veginn gat komið inn á þetta blogg (don´t ask why)... Erum loksins flutt í fína húsið okkar á Hlíðargötunni, búum hér ein stór fjölskylda og gengur bara rosalega vel. Litlu krúttupútturnar mínar, Elísabet og Lovísa, eru eins og englar og ekkert smá gaman að fá að vakna með þeim á morgnana og leika við þær. Skruppum í ístúr í dag og fórum í Sólbrekkuskóg og löbbuðum upp á fjall (á þeirra mælikvarða), heimsóttum svo ömmu Veigu og afa Hansa í kirkjugarðinn og brunuðum svo heim í Sandgerði til að vekja pabba af því að það var að kvikna í þarna rétt hjá Bláa Lóninu, æ þessar elskur... Ég er alveg að deyja úr þreytu núna, helgarnar sem ég er að vinna eru algert keis, ég áttaði mig á því í morgun að ég var búin að vera í vinnugallanum frá því sex í gærmorgun en ég var líka ekkert búin að sofa frá því þá (fyrir utan kríuna sem ég tók í nótt og svaf næstum því yfir mig þegar ég átti að mæta klukkan hálf fjögur í nótt), kom síðan heim klukkan fimm, tók því ekkert að fara að sofa þar sem ég þurfti að mæta aftur klukkan sex, jebbs þetta er sko stuð... Svo er allt farið á fullt í Ferða- og menningarráði sem ég er komin í hérna í blessuðu Sandgerðinni, Sandgerðisdagar á næsta leyti, allir að taka frá helgina og mæta, það verður sko heldur betur stuð... Ég ætla að láta þetta nægja í bili, er að fara að taka síðustu törnina í kvöld og fæ svo tveggja daga kærkomið frí :-)


þangað til næst...

Friday, June 16, 2006

Boston og svo Búlgaría

jehh beibí, kom frá Boston á laugardagsmorguninn, bara töff ferð... Ég og Thelma lentum í allskonar ævintýrum eins og... fórum í viðtal hjá Hallmark sjónvarpsstöðinni, fórum í heimsókn til Jacks í Jacks joke shop og lékum okkur þar fyrir framan myndavélarnar eins og pro... borðuðum ógeðslegasta kínverska mat sem hægt er að hugsa sér, sjáið þið nú til, á gólfunum var gamalt brúnt rósótt teppi, skítug fiskabúr með allskonar vatnaverum í t.d. álum og svo voru bara þjónar þarna sem hlógu bara að okkur, guð veit hvað þeir voru að láta okkur borða... gamall svartur kall bauð okkur far frá Target og vildi svo endilega hitta okkur í púl og eitthvað en nei takk gamli... maður var drepinn fyrir framan hótelið okkar (sáum það reyndar ekki sem betur fer)... keyptum svo helling af flottum fötum og drukkum MIKIÐ af bjór :-) helv.. ég get aldrei sett inn neinar myndir reyni að henda inn einni og einni, allavega, þarf að fara að næra mig, þýðir ekkert að drekka bara bjór…


































kv. Gulla

Thursday, June 01, 2006

b fyrir bjór, B fyrir Boston

vei vei vei, ég er að fara til Boston á morgun... mikil gleði... búið að vera brjálað að gera þessa vikuna, enda búin að líða svona quiss bara bang, er að fara að pakka niður, klára þvottinn og elda mat handa Tóta sem þarf að endast honum út vikuna, jújú, föstudagur: hakk og spagetti í tómatsósu, hvítt tupperware box inni í skáp, nei glætan, farðu bara og keyptu þér pulsu...

nennekkert að skrifa meira, hef ekki tíma, er að fara að pakka, fá mér einn öl og reyndar jú klára þvottinn, það er engin lygi... og svo kannski... nei leyndó...

kannski hendi ég einhverju inn ef ég nenni, fæ mér sæti á netkaffihúsi þar sem ég og Thelma mín munum eflaust sitja með kaffibollana okkar ... eða bjór, bjór er betri, fyrst kaffi og svo bjór...

Túrílú

ég veit að þið munuð sakna mín,
þar sem ég sit og sötra bjórinn minn,
í Boston þar sem alltaf sólin skín,
með gleði í hjarta ég kveð ykkur um sinn

kv. Mulla