Friday, April 07, 2006

Páskafrí í dag

Ákvað að skella mér á Aftan-Festival í gær eftir vinnu og ég sé sko ekki eftir því... Gugga og Halli (Abi) voru ekkert smá flott, gaman að fá að heyra í þeim loksins og svo voru Smári og co. ekki síðri, ekkert smá skemmtilegt Uganda lagið :-) Það var eins og ég hefði verið slegin í andlitið með tusku í morgun... Var bara að dúlla mér í föstudagssturtunni og þá kom það í kollinn á mér... Ég er að fá sama útborgað á mánuði og þegar ég var að vinna í sjoppunni í Ólafsvík þegar ég var 14-15 ára gömul... Hvað er það... grát grát... Eftir allt sem maður er búinn að ganga í gegnum... pú hú hú... Tengdó ætla að koma og vera hjá okkur um helgina... alltaf gaman að fá þau í heimsókn þessar elskur... og svo náttlega ferming á sunnudaginn, var víst búin að nefna það... og já, páskafríið er að fara að skella á...

Mulla

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hummm...? Eru kennaralaun svona slæm eða sjoppulaun í Óló svona góð?

10:37 AM  
Blogger Gullanna Parker said...

hehe giskaðu tvisvar mín kæra :-) Er alveg að fara að koma í heimsókn til þín í alvöru sko... nú fer að líða að því

2:15 PM  
Blogger Gullanna Parker said...

hehe ég held ég skelli mér bara á sjóinn... :-) Sjáið þið mig ekki fyrir ykkur, í flauelsbuxunum mínum með axlarbönd, með hjartatattoo á öxlinni þar sem stendur Tóti á... tottandi sígarettuna í vinstra munnvikinu og stígvélum... hehe sjómannslíf sjómannslíf... og já Tóti heimavinnandi húsfaðir, heima með börnin að elda gúllas hahahaha, stendur í eldhúsglugganum með kíkinn að bíða eftir mullunni sinni... vá þetta er að verða ritgerð... (heimild: Guðlaug Finnsdóttir (2006). „Sjókonulíf í Sandgerði“ (inniheldur slagarann ein uppi á dekki með klósettburstann). Útgefandi, Bókasafn Sandgerðis, Vörðunni.

9:47 AM  
Anonymous Anonymous said...

afhverju vantar þig klósettbursta?????????????????????????

5:16 AM  
Blogger Gullanna Parker said...

hehe ég var bara í stuði fyrir smá fun ;-)

6:19 AM  

Post a Comment

<< Home