Wednesday, April 12, 2006

Kjólar og skór

Vá hvað ég hlakka til að fara til Boston (þó ég sé ekki að fara neitt að versla sko) :-) Mín ætlar sko þó að njóta þess að skoða flott föt, flotta kjóla og skó... drekka cosmopolitan og dry martini (sex and the city fan, can´t help it)... er búin að vera að skoða á netinu kjóla og ég er orðin alveg veik... ég vildi óska að saumavélin mín væri í lagi, þá væri ég á fullu. Ég get alveg dundað mér í marga klukkutíma við solleiðis, breyta fötum og sauma... En svo er það nú að það er oft ódýrara að kaupa sér heldur en að sauma því efni er svo dýrt... Svo er verið að reyna að plata mann til Glasgow í nóvember, what to do, to hard. Engann veginn efni á því, en svo freistandi... Væri alveg til í líka að skreppa til ömmu og afa, þar er sko hægt að finna sér ýmislegt fyrir ekki neitt. En allavega, erum að spá í að skreppa í bústað um helgina... Fátt betra en að kúra upp í bústað með Arnarfellið vakandi yfir sér, blanda sér kokteil og hlusta á rás 2... Er búin að reyna og reyna og reyna að setja inn myndir af nokkrum æðisgengnum kjólum og skóm en ekkert... EKKERT... glatað, en ef þið hafið brennandi áhuga getið þið skoðað www.instyle.com :-) lots of good stuff :-)

10 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ohhh ég öfunda þig!
Og Nei nei nei nei þú kaupir auðvitað ekki neitt - skoðar bara. já já já... ;)
Hafiði það nú notó í sumóbústaðó, ég verð heima að læra!
Páskafrí hvað?

4:36 AM  
Anonymous Anonymous said...

Nú bara rómó eða bara spila og hafa gaman með fl. ég er ekki að fara til Glasgow. Sagði nei takk. ég væri samt alveg til í að fara til Boston baby að bersla en það er allt of dýrt að komast þanagð.

8:46 AM  
Blogger Gullanna Parker said...

ok... við erum að spá að fara með mömmu þinni og Valgeiri, erum samt ekkert búin að ákveða, ætliði á ísafjörð??? Komið bara með okkur á kojufyllerí á stapa :-)

8:50 AM  
Anonymous Anonymous said...

Kjólar og skór kjólar og skór...
Jæja, á ég ekki að hafa neitt að lesa í prófunum?
;)

6:08 AM  
Blogger Gullanna Parker said...

hehe :-) ój ój ój, hvað ég öfunda þig ekki að vera í prófum elskan mín, en samt, gangi þér vel í prófunum :-) það er eitthvað rugl í gangi svo ég get ekki bloggað þessa stundina, búin að skrifa fullt og svo dettur allt bara út, glatað :(

12:00 PM  
Anonymous Anonymous said...

O jæja... ætli ég lesi þá ekki bara skólabækurnar ;/
Svo fer ég líka alveg að fara að koma í heimsókn, þá get ég fengið nýjustu fréttirnar beint í æð. Ætlaru að halda upp á afmælið þitt? gamla mín ;) vissiru að ég er nýorðin 24.? hehe

2:02 AM  
Blogger Gullanna Parker said...

hehe dísus já kellingin víst að verða 25 ára jííííí... ég veit ekki, langar alveg að halda upp á það, heimsfararnir vinir mínir koma einmitt heim á ammælisdaginn minn svo það verður nú vonandi allavega einhver gleði :-) þá verður þú að koma og halda upp á fjórðungsafmæli með mér :-)

3:16 AM  
Blogger Nikki Badlove said...

Sýningin Holir Bolir opnar í Suðsuðvestur laugardaginn 29. apríl klukkan þrjú....velkomin...

4:30 PM  
Blogger Linda said...

va, kikti a thessa sidu og missti mig alveg i ad skoda kjolana. mig langar ad versla!

kv. linda lola punk

2:46 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ekki spurning!

2:35 AM  

Post a Comment

<< Home