Flensa í mánuð
…þetta er bara ekki alveg allt í lagi... kominn maí, ótrúlegt. Akkurat 30 dagar þangað til ég fer til Boston með skólanum, og 50 þangað til við förum til Búlgaríu. Þá verður sumarfríið búið og ég fer að vinna á fullu og þá meina ég fullu í sumar. Ákvað að taka að mér það sama og ég var með í fyrra hjá Kynnisferðum uppi á flugvelli, sosum ágætt, slítandi vinnutími en fínt þó og ágætislaun... Ég er núna búin að vera með einhverja pest í dágóðan tíma, var komin með hálsbólgu fyrir páskafrí (6. apríl) og er enn að berjast við þetta. Er ekki búin að finna neitt bragð né lykt í núna tvær vikur, alveg glatað, og í þokkabót er ég líka búin að vera með hellur fyrir eyrunum í meira en tvær vikur svo ég er hálf heyrnalaus, frekar erfitt að kenna þannig en , what the hell, er búin að prófa allt, fjórar tegundir af hóstasafti, engifer, sítrónu, hunang, c-vítamín, spirulina, lýsi, grænt te, hrotusprey, fótakrem á nebbann og hálsinn... name it... ég á bara ekkert að geta losað mig við þetta, það glataðasta er að ég ætlaði sko aldeilis að taka mig á og fara í brjálað átak í apríl-maí, en nei, ekkert, fór á eina æfingu og var eins og alger drusla, hóstaði bara úr mér líffærin og fékk svima eftir hverja æfingu, ekki gott… þannig að það verður bara að bíða, Valgeir verður bara að þola mig svona bollótta úti í Búlgaríu, átti víst að losa mig við 10-15 kg. Já mar er orðinn soldið bústinn, það kemur eitt kilo með hverju ári sem maður eldist…
Mulla
Mulla

8 Comments:
Nohh aftur upp i flugstod? Toff.. we'll all be working partners again :) c u soon :)
já hlakka til að vera með þér í sumar í brjálæðinu :-) (gaman að segja líka sjáumst bráðlega :-))
hehe ég kennari og þú mamma :-) við verðum allavega ekkert yngri ... :-)
ó já, það kemur sko eitt kíló með hverju ári sem að maður eldist ! af hverju það???????
nýtt blogg komið í gagnið. Breyta því í tenglum NÚNA!! : www.rjupan.bloggar.is
ok freka rjúpa :-)
Hey hva!
Kom ekki öldrunarpistill þann 19.maí??!
Vonandi var dagurinn góður í ALLA staði músin mín
knúúúúús...
hæ jú takk ástin mín, ég átti sko heldur betur góðan dag :-)
Post a Comment
<< Home