Wednesday, April 12, 2006

Kjólar og skór

Vá hvað ég hlakka til að fara til Boston (þó ég sé ekki að fara neitt að versla sko) :-) Mín ætlar sko þó að njóta þess að skoða flott föt, flotta kjóla og skó... drekka cosmopolitan og dry martini (sex and the city fan, can´t help it)... er búin að vera að skoða á netinu kjóla og ég er orðin alveg veik... ég vildi óska að saumavélin mín væri í lagi, þá væri ég á fullu. Ég get alveg dundað mér í marga klukkutíma við solleiðis, breyta fötum og sauma... En svo er það nú að það er oft ódýrara að kaupa sér heldur en að sauma því efni er svo dýrt... Svo er verið að reyna að plata mann til Glasgow í nóvember, what to do, to hard. Engann veginn efni á því, en svo freistandi... Væri alveg til í líka að skreppa til ömmu og afa, þar er sko hægt að finna sér ýmislegt fyrir ekki neitt. En allavega, erum að spá í að skreppa í bústað um helgina... Fátt betra en að kúra upp í bústað með Arnarfellið vakandi yfir sér, blanda sér kokteil og hlusta á rás 2... Er búin að reyna og reyna og reyna að setja inn myndir af nokkrum æðisgengnum kjólum og skóm en ekkert... EKKERT... glatað, en ef þið hafið brennandi áhuga getið þið skoðað www.instyle.com :-) lots of good stuff :-)

Friday, April 07, 2006

Páskafrí í dag

Ákvað að skella mér á Aftan-Festival í gær eftir vinnu og ég sé sko ekki eftir því... Gugga og Halli (Abi) voru ekkert smá flott, gaman að fá að heyra í þeim loksins og svo voru Smári og co. ekki síðri, ekkert smá skemmtilegt Uganda lagið :-) Það var eins og ég hefði verið slegin í andlitið með tusku í morgun... Var bara að dúlla mér í föstudagssturtunni og þá kom það í kollinn á mér... Ég er að fá sama útborgað á mánuði og þegar ég var að vinna í sjoppunni í Ólafsvík þegar ég var 14-15 ára gömul... Hvað er það... grát grát... Eftir allt sem maður er búinn að ganga í gegnum... pú hú hú... Tengdó ætla að koma og vera hjá okkur um helgina... alltaf gaman að fá þau í heimsókn þessar elskur... og svo náttlega ferming á sunnudaginn, var víst búin að nefna það... og já, páskafríið er að fara að skella á...

Mulla

Thursday, April 06, 2006

Aftan Festival

...þá er aftan festival byrjað í Sandgerði... Halli var búinn að gera mig svo heita fyrir að mæta en svo mundi ég eftir því að auðvitað þurfti ég að vera að vinna í kvöld :-( ef ég verð rosa fljót þá næ ég samt kannski að fá mér einn öl með þeim á Mamma Mía. Mig langar ekkert smá að sjá hann og Guggu taka lagið :-) Morgundagurinn verður ljúfur. Fer með bekknum að horfa á Grease, sem unglingastigið er búið að setja upp í skólanum, er búin að heyra að þetta sé alveg geggjað hjá þeim, hlakka mikið til. Síðan verður það páskaföndrið, maður verður náttlega að leyfa þessum greyjum að föndra eitthvað, smá tilbreyting :-) Er búin að útbúa voða flott handa þeim til að dunda við, páskaunga í körfu, voða dúlló... Úllinn minn er að fara að fermast í sunnudaginn, ég trúi þessu varla, litli sæti brói orðinn svona stór... en jú maður eldist víst líka, maður er alveg farinn að sjá ummerki ellinnar hér og þar :-) (eða svona)... og svo... eru aðeins 58 dagar til Boston, ekkert smá stutt þangað til... ég og Thelma ætlum sko heldur betur að meika það...

kv. Mulla