Sunday, July 16, 2006

já góðan daginn... þá ætla ég að reyna að blogga eitthvað, var reyndar búin að skrifa heilan helling um Búlgaríu og fullt af öðru góðu stöffi, sem síðan ég bara engan veginn gat komið inn á þetta blogg (don´t ask why)... Erum loksins flutt í fína húsið okkar á Hlíðargötunni, búum hér ein stór fjölskylda og gengur bara rosalega vel. Litlu krúttupútturnar mínar, Elísabet og Lovísa, eru eins og englar og ekkert smá gaman að fá að vakna með þeim á morgnana og leika við þær. Skruppum í ístúr í dag og fórum í Sólbrekkuskóg og löbbuðum upp á fjall (á þeirra mælikvarða), heimsóttum svo ömmu Veigu og afa Hansa í kirkjugarðinn og brunuðum svo heim í Sandgerði til að vekja pabba af því að það var að kvikna í þarna rétt hjá Bláa Lóninu, æ þessar elskur... Ég er alveg að deyja úr þreytu núna, helgarnar sem ég er að vinna eru algert keis, ég áttaði mig á því í morgun að ég var búin að vera í vinnugallanum frá því sex í gærmorgun en ég var líka ekkert búin að sofa frá því þá (fyrir utan kríuna sem ég tók í nótt og svaf næstum því yfir mig þegar ég átti að mæta klukkan hálf fjögur í nótt), kom síðan heim klukkan fimm, tók því ekkert að fara að sofa þar sem ég þurfti að mæta aftur klukkan sex, jebbs þetta er sko stuð... Svo er allt farið á fullt í Ferða- og menningarráði sem ég er komin í hérna í blessuðu Sandgerðinni, Sandgerðisdagar á næsta leyti, allir að taka frá helgina og mæta, það verður sko heldur betur stuð... Ég ætla að láta þetta nægja í bili, er að fara að taka síðustu törnina í kvöld og fæ svo tveggja daga kærkomið frí :-)


þangað til næst...

6 Comments:

Blogger Gullanna Parker said...

hehe :-) jebbs frí um helgina loksins, er að fara í partý :-) gleði gleði gleði

3:51 PM  
Anonymous Anonymous said...

Það er allt of langt síðan að ég hitti þig og Tóta. Reyni að plata Herdísi með mér til Sandgerðis

12:43 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hæhæ ég var bara að kíkja á þetta hjá þér.. hef ekki lesið hjá þér geðveikt lengi en Regína segir mér stundum fréttir.... Bið bara að heilsa, Rut (og Erla og Dabbý biðja örugglega að heilsa).. bæææ og góða skemmtun

6:29 PM  
Blogger Gullanna Parker said...

já hæ, ég er víst orðinn svo mikill sveitalubbi að ég er alveg búin að missa kontakt við umheiminn, hef allavega ekki heyrt í ykkur öllum nokkuð lengi :-) ég bið líka að heilsa nb. vá hvað þetta myndband sem við fengum sent var hræðilegt, ááááiiiii

4:26 AM  
Anonymous Anonymous said...

Bíddu vóóó hvar ert þú eilega að vinna... pifff þú átt ekki að láta þræla þér svona út mar.....

2:59 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ha ha ha ég dó úr hlátri þegar ég horfði á myndbandið. Ertu ekki annars að tala um reunionið? Á ekki að mæta annars?

6:30 AM  

Post a Comment

<< Home