Gamla konan getur þetta ennþá...
Kellingin bara orðin 25 ára, scheize... Þetta var alveg ótrúlega skemmtileg helgi... Sóttum Klöru, Tomma og Búa upp á flugvöll ásamt öllu krúinu þeirra... Skrýtið að sjá þau aftur eftir svona rosalega langan tíma en fyrst og fremst gaman auðvita... Partý hjá Tomma um kvöldið og djammað fram á rauða nótt... Á laugardagskvöldið hélt mamma hans Búa óvænta útskriftarveislu handa honum... við vorum öll mætt á svæðið þegar hann loksins kom úr þessari plönuðu Reykjavíkurferð... og svo bara SURPRISE... hann var voða kátur með það kallinn... og svo var djammað fram eftir morgni... þetta getur maður víst, ég var að halda því fram við frænkur mínar að maður væri orðinn svo gamall að maður gæti þetta víst ekki lengur en sjá kellu... kvöldið (morguninn) endaði með heljarins partý heima hjá Rósu og Halla (við þrjú og einhver gaur) og það var heldur betur rokkað... Tóti kallinn kom eitthvað um hálf níu klæddur í einkennisbúninginn... ekkert smá flottur... en brá heldur í brún þegar hann sá pakkið vera að gera það sem það var að gera ... látum svo vera... en jú þetta var ótrúlega skemmtilegt allt saman. Ég held ég verði að hætta að taka myndavélina mína með mér út á skrallið, tölvan er orðin stútfull af myndum, low disk space segir hún bara í sífellu... Svo eru bara kosingar framundan... allt að verða vitlaust... en rosalega gaman... ætli sagan muni ekki endurtaka sig á næstu helgi... kannski... Petra hringdi allavega í mig áðan að kynda mig... svo er bara í næstu viku BOSTON með kennurunum... fljótt að líða... mjög fljótt að líða... Thelma mín í ferðalagi með 10. bekk einhversstaðar í rassgati... sakna hennar... en jú ekki líður á löngu fyrr en við förum líka til Búlgaríu... og svo flytja... nóg að gera hjá Gullunni og Tótanum í Túngötukotinu...

5 Comments:
Gaman að hitta þig um helgina skvís :) kastaðu kveðju á kjellinn :)
Kossar og knús....
já stuðið heldur áfram, það er víst :-) reyndar verð ég að vera góð á föstudaginn þar sem ég þarf að mæta kl. 10.00 á laugardaginn á vorhátíð í skólanum... en það verður tekið á því á allavega á laugardagskvöldið :-)
Allir að setja x við S
Nohh! ég sem hélt að þú værir ekkert unglamb lengur! Það er nú meira sem þú getur djammað, tvö kvöld í röð, tvær helgar í röð :D
Ég bara bið að heilsa, þarf víst að fara að læra! Prófin byrjuð og fullt að gera :P
Nei blessuð Gulla, ja ert sko sannalega gömul kelling miða við bæklingin okkar :)
En rakst á síðuna þína og takk fyrir alla hjálpina sem þú gafst af þér í pólitikinni í sandgerði :)
kv. Fríða
takk sæta :-)
Post a Comment
<< Home